Njarðvík tryggði sér sæti í 8 liða úrslitum VÍS bikarsins með 100-62 sigri á Víði Garði í Blue-höllinni í kvöld. Áhorfendur voru 250. Munurinn á liðunum reyndist of mikill til að leikurinn yrði nokkru sinni spennandi.
Heimamenn byrjuðu þó vel. Þeir komust nokkrum sinnum yfir og leiddu 25-23 eftir fyrsta leikhluta. Í öðrum leikhluta skildu leiðir, Njarðvík vann hann 29-7 og leiddi 52-32 í hálfleik. Njarðvík spilaði lengi vel á sínum yngstu mönnum. Yfirburðir liðsins í fráköstum, 65-42, og 28 stig úr hraðaupphlaupum gerðu útslagið. Víðismenn töpuðu auk þess 22 boltum.
Aleksa var stigahæstur Njarðvíkinga með 19 stig og 10 fráköst. Brynjar Kári skoraði 16 stig og Hugi skilaði 12 stigum og 13 fráköstum. Víðir teflir að mestu fram ungum leikmönnum úr yngri flokkum Keflavíkur. Þar voru Frosti og Jakob Máni stigahæstir með 11 stig hvor og Daniel Eric bætti við 9 stigum.




