HomeÚti í heimiEvrópaLentu á vegg gegn ógnarsterku liði Real Madrid

Lentu á vegg gegn ógnarsterku liði Real Madrid

Real Madrid heldur áfram að sýna yfirburði í spænsku úrvalsdeildinni en liðið vann sinn fjórða leik í röð þegar Bilbao Basket kom í heimsókn.  

Madrídingar gerðu út um viðureignina strax í fyrsta leikhluta með því að komast í 36–13 og unnu að lokum stórsigur, 119–84. Tryggvi Snær Hlinason spilaði í 20 mínútur fyrir Bilbao og skilaði níu stigum, þremur fráköstum, einni stoðsendingu og einum stolnum bolta. Bilbao er nú með tvo sigra og tvö töp eftir fjórar umferðir.

Fréttir
- Auglýsing -