Þriðju umferð 1. deildar karla lauk í kvöld þar sem öll þrjú toppliðin unnu örugga sigra, skoruðu yfir 110 stig og eru með fullt hús stiga á toppnum.
Þórsarar úr Þorlákshöfn fóru hamförum í Vesturbænum og burstuðu KV 140–84. Sigvaldi Eggertsson leiddi Þór með 28 stig, Djordje Dzeletovic skoraði 27 og Joey Holifield bætti við 20 stigum og níu stoðsendingum. Tristan Ari Bang Margeirsson skoraði 14 stig fyrir KV.
Á Akranesi vann ÍA öruggan 113–81 heimasigur á Snæfelli eftir að hafa lagt grunninn að sigrinum í fyrsta leikhluta (33–15). Sölvi Ólason, Igor Maric og Gojko Sudzum skoruðu allir 21 stig fyrir Skagamenn á meðan Cooper Jakob Jackson skoraði 21 stig fyrir Snæfell.
Í Grafarvogi unnu Haukar 111–83 útisigur á Fjölni. Frosti Valgarðsson fór fyrir Haukum með 30 stig og Anthony Charles Bryant Jr. bætti við 26 stigum. Hjá Fjölni skilaði Daníel Ágúst Halldórsson 31 stigi og tólf fráköstum.




