Grindavík fór tómhent heim af Hlíðarenda í kvöld eftir að Valur tryggði sér 81–74 sigur í Bónus deild karla.
Útlitið var lengst af bjart hjá Suðurnesjamönnum sem svöruðu góðri byrjun Vals (29–26) með öflugum öðrum leikhluta og náðu 14 stiga forskoti í þeim þriðja. Staðan var 68–62 fyrir gestina þegar fjórði leikhluti hófst, en þar hrundi sóknarleikur þeirra algjörlega. Grindavík náði aðeins að skora sex stig allan fjórðunginn á meðan heimamenn gengu á lagið. Léleg þriggja stiga nýting gestanna reyndist banabiti þeirra en aðeins tíu af 44 skotum utan af velli rataði rétta leið (22%).
Pablo Bertone bar hitann og þungann af sóknarleik Vals og skoraði 25 stig. Kári Jónsson og Dwayne Lautier lögðu til 17 stig hvor, en Atli Freyr Haraldsson Katrínarson átti öflugan leik í teignum með 16 stig og 14 fráköst. Kristófer Acox skilaði níu fráköstum og fjórum stoðsendingum.
Í liði gestanna var Mirza Bulic óstöðvandi undir körfunni með 22 stig og 19 fráköst. Ragnar Örn Bragason átti sömuleiðis góðan leik með 20 stig og Arnór Tristan Helgason skoraði 13 stig, en það dugði skammt eftir algjört frost á lokamínútunum.




