HomeBónus deildinBónus deild karlaHöttur hélt sjó eftir ótrúlegan lokasprett Stjörnunnar

Höttur hélt sjó eftir ótrúlegan lokasprett Stjörnunnar

Föstudagar eru frábærir körfuboltadagar sagði maðurinn en það er ekki víst að hann hafi átt við þessa einstöku umferð í Bónusdeild karla í körfubolta. Stórir sigrar eftir bókinni áttu fimmtudagskvöldið, en í Garðabænum fengu kanalausir Stjörnumenn Hött frá Egilsstöðum í heimsókn.

Heimamenn virkuðu bæði léttir og máttlitlir í upphafi leiks og vildu skotin ekki fara ofaní. Hattarmenn hins vegar létu finna fyrir sér. Það var einna helst Hilmar Henningsson sem átti það til að komast nálægt körfuhringnum með sínum frægu gegnumbrotum. Mikið var flautað á kafla í fyrri hálfleik svo lítið flæði komst í leikinn sem var þó í ágætis jafnvægi fram að hálfleik. Gestirnir voru þó yfirleitt skrefinu á undan og leiddu í hálfleik, 46-50.

Hilmar Smári var stigahæstur heimamanna með 15 stig í hálfleik og Marquis Jackson setti 10 fyrir gestina.

Stjörnumenn byrjuðu þriðja leikhlutann illa og Höttur gekk á lagið. Settu skotin sín, tóku sóknarfráköst og enginn í liði Stjörnunar fyrir utan Hilmar Smára og Ægir virtust með lífsmarki. En þrátt fyrir að hafa leitt með 15 stigum eftir þrjá leikhluta þá tókst Hattarmönnum að gera leikinn aftur spennandi með ótímabærum skotum og vondum töpuðum boltum. Stjarnan gekk á lagið og jafnaði leikinn 95-95 þegar að lítið var eftir af leiknum. Það dugði þó ekki til og gestirnir fögnuðu mikilvægum sigri, 98-103.

Jackson skoraði 29 stig fyrir Hött en Hilmar Smári smellti í 29 stig fyrir Stjörnuna.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -