Tindastóll tók á móti Ármanni í Bónus deild karla í körfuknattleik í Síkinu í kvöld. Stólar höfðu unnið fyrsta leik deildakeppninnar í Njarðvík en urðu fyrir mikilli blóðtöku þegar Adomas Drungilas meiddist illa. Ármann tapaði fyrir Keflavík í Höllinni í fyrstu umferð.
Stólar byrjuðu mun betur í kvöld og komust í 8-0 í byrjun og Ármenningar náðu ekki að koma stigi á töfluna fyrr en tæpar 3 mínútur voru liðnar. Þá skoruðu þeir reyndar 9 stig í röð og komust yfir og Stólar voru slegnir út af laginu. Þeir áttuðu sig þó fljótlega, hertu varnarleikinn og unnu fyrsta leikhluta 22-17. Heimamenn héldu svo áfram að herða tökin á leiknum, hreyfðu lið sitt vel og komust í 16 stiga forystu þega 4 mínútur voru til hálfleiks með þrist frá Arnari Björns sem var í stuði. Staðan 54-37 í hálfleik.
Í seinni hálfleik héldu Stólar áfram að keyra yfir gestina og enduðu með að vinna öruggan 109-86 sigur. Arnar endaði stigahæstur heimamanna með 21 stig (4/6 í þristum) og þeir Ade Murkey og De Bost bættu við 18 stigum hvor. Allir leikmenn Tindastóls á skýrslu náðu að setja stig á töfluna í kvöld. Hjá gestunum var Hodges langöflugastur og endaði með 26 stig og 7 fráköst, mikill gormur þar á ferð.




