Keflavík vann öruggan 106–90 heimasigur gegn nýliðum Sindra í Bónus deild karla í kvöld.
Heimamenn byrjuðu vel og leiddu með sjö stigum eftir fyrsta leikhluta, 31–24, en Hornafjarðarpiltar svöruðu af krafti í öðrum leikhluta og minnkuðu muninn í tvö stig fyrir leikhlé, 56–54.
Það var svo í þriðja leikhluta sem Keflvíkingar gerðu gæfumuninn, hertu tökin í vörninni og unnu leikhlutann 26–14. Gestirnir náðu ekki að brúa það bil á lokakaflanum og heimamenn sigldu 16 stiga sigri örugglega í höfn. Skotnýting fyrir utan þriggja stiga línuna vó þungt í leiknum en Keflavík setti niður 11 þrista (36%) á meðan Sindri hitti aðeins úr fimm af 26 tilraunum sínum (19%).
Jamir Chaplin var stigahæstur hjá Keflavík með 26 stig og fimm stoðsendingar. Bragi Guðmundsson átti stórleik með glæsilegri tvennu, 24 stig, tíu fráköst og sex stoðsendingar, Jaka Brodnik skilaði 17 stigum og átta fráköstum og Hilmar Pétursson bætti við 16 stigum og sex stoðsendingum.
Í liði Sindra fór Craig Lecesne fremstur í flokki með 23 stig og tíu fráköst. Kaleb Lamar Higgins daðraði við þrefalda tvennu með 20 stigum, átta fráköstum og níu stoðsendingum, og Martins Meiers skilaði 15 stigum og sex fráköstum.




