Tindastóll hefur orðið fyrir miklu áfalli en miðherjinn stóri og stæðilegi Adomas Drungilas verður frá keppni um óákveðinn tíma eftir alvarleg meiðsli í leik gegn Njarðvík í síðustu viku.
Atvikið átti sér stað í leiknum þegar Litháinn lenti illa á hægri ökklanum með þeim afleiðingum að hælbeinið tvíbrotnaði, en hann var fluttur tafarlaust á sjúkrahús. Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, staðfesti í samtali við Vísi að Drungilas hefði farið í myndatöku á Sjúkrahúsinu á Akureyri til að kanna mögulegt slit á liðböndum, en niðurstaða úr þeirri skoðun lá ekki fyrir síðdegis.
Ljóst er að Drungilas verður fjarri góðu gamni í langan tíma og missir meðal annars af leik Tindastóls gegn Ármanni í kvöld.




