HomeBónus deildinBónus deild karlaHvaða atvinnumenn lofa góðu og hverjir ekki? Tölfræðilíkan rýnir í nýju erlendu...

Hvaða atvinnumenn lofa góðu og hverjir ekki? Tölfræðilíkan rýnir í nýju erlendu leikmennina

Ráðningar á erlendum leikmönnum eru stærstu einstöku fjárfestingar körfuknattleiksdeilda hér á landi. Vel heppnuð kaup geta lyft félagi upp í baráttu um titla á meðan misheppnuð val getur kostað milljónir í uppgjörum og flugmiðum. Sigurður Amlin Magnússon hefur sett saman spálíkan sem rýnir í alla nýja erlenda leikmenn í Bónus deildum karla og kvenna.

Líkanið byggir á gögnum um frammistöðu erlendra leikmanna á Íslandi síðustu ár og ber saman styrkleika þeirra deilda sem leikmennirnir voru að spila í. Með því er reiknuð spá um stig, fráköst og stoðsendingar ásamt líkindabili. Rétt er að taka fram að líkanið sér eingöngu tölur; það metur hvorki varnarleik, persónuleika né hvernig leikmaður fellur inn í liðsheildina.

Bónus deild karla

Hverjum er spáð góðu gengi?

  • Makye Richards (Njarðvík) – Spá: 20,2 stig: Trónir á toppnum. Hefur raðað inn stigum hvar sem hann fer: 31 stig í Sýrlandi, 27,7 í Kúveit og 20,8 í líbönsku efstu deildinni. Spurningin sem líkanið veltir upp er hvort stigaskor hans haldi gegn betri varnarmönnum hér á landi.
  • Kaleb Higgins (Sindri) – Spá: 19,1 stig og 5,9 stoðsendingar: Skoraði 19,5 stig í Rúmeníu fyrir tveimur árum, þótt hann hafi spilað fáa leiki síðan.
  • Montez Mathis (ÍR) – Spá: 17,7 stig: Spáð hátt eftir að hafa skorað 24,6 stig í leik í Georgíu, þó líkanið minni á að neðri mörkin (um 13 stig) séu fullkomlega raunhæf.
  • Rashun Davis (KR) – Spá: 17,4 stig: Með mikla reynslu úr serbnesku deildinni, en spáin treystir á að hann nái fyrra formi.
  • Marquis Jackson (Höttur) – Spá: 16,9 stig: Reyndur leikmaður úr næstefstu deildum Frakklands og Spánar.

Hverja varar líkanið við eða hefur litla trú á?

  • Adam Johansson (Ármann) – Spá: 6,2 stig: Lægst metinn allra leikmanna í deildinni. Sænskur leikstjórnandi með mikla reynslu, en líkanið bendir beint á að dýrt sé að nota erlenda sætið á leikmann sem skilar einungis rúmum sex stigum í leik.
  • Oliver Bieshaar (Ármann) – Spá: 10,4 stig: Situr í neðsta fjórðungi og líkanið gerir ráð fyrir að hann skili takmörkuðu framlagi í sókninni.
  • Josh Martin (Höttur) – Spá: 11,3 stig: Er ekki ætlað að vera mikill stigaskorari (þótt honum sé spáð 8,5 fráköstum).
  • Martins Laksa (Álftanes) – Spá: 12,8 stig: Er 36 ára skytta sem spilaði aðeins fimm leiki á síðustu leiktíð; líkanið telur raunhæft að hann gæti endað á neðri mörkum spárinnar (um 8 stig).
  • Roberts Bērziņš (KR) – Spá: 14,2 stig: Líkanið varar við því að líta á hann sem helsta skapara liðsins, heldur frekar sem hlutverka- og skotbakvörð.

Bónus deild kvenna

Hverjum er spáð góðu gengi?

  • Dyani Robinson (Fjölnir) – Spá: 21,2 stig: Hæsta spáin í kvennadeildinni eftir að hún skoraði 24,9 stig í Norður-Makedóníu. Líkanið setur þó fyrirvara við hvort tölurnar hafi verið litast af veikari andstæðingum.
  • Dazia Lawrence (KR) – Spá: 20,6 stig og 6,0 fráköst: Kemur úr bandaríska háskólaboltanum og efstu deild í Frakklandi. Mjög öflugur skorari.
  • Zay Dyer (Stjarnan) – Spá: 19,2 stig og 12,3 fráköst: Kemur beint úr NCAA (Troy). Hún er með besta spábilið (10,7–27,6 stig), en líkanið telur frákastatölurnar mun öruggari en stigasúpuna.
  • Amaiquen Siciliano (Keflavík) – Spá: 17,8 stig: Hefur skorað 25 stig í leik á Ítalíu og líkanið telur hana stíga aftur upp í stórt hlutverk hér.

Hverjar ná ekki miklu flugi í líkaninu?

  • Milica Sirovina (Ármann) – Spá: 7,1 stig: Situr ein í neðsta fjórðungi deildarinnar; líkanið spáir henni mjög takmörkuðu hlutverki sóknarlega.
  • Tegan Graham (Grindavík) – Spá: 11,2 stig: Skoraði vel í Þýskalandi en aðeins 2,5 stig í Ástralíu á síðasta ári. Líkanið setur spurningarmerki við hvort hún reynist aðalleikstjórnandi.
  • Quinzia Fulmore (Tindastóll) – Spá: 14,9 stig og 9,1 fráköst: Kemur úr háskóla þar sem hún var aldrei mikill skorari. Líkanið tekur skýrt fram að hún sé frákastari fremur en sóknarvopn.

Dómurinn fellur í vor

Allar spárnar voru skráðar áður en tímabilið fór af stað. Þegar flautað verður af í vor mun Sigurður bera spálíkanið saman við rauntölur vetrarins til að sjá hversu vel tölfræðin sá fyrir raunveruleikann.

Ítarlega greiningu, gröf og heildartölfræði allra leikmanna má nálgast á vefnum:

Skoða heildargreininguna og myndir á stats.amlin.is/grein/

Fréttir
- Auglýsing -