HomeNeðri deildir1. deild karlaÖruggur sigur KFG í Garðabæ og mikil spenna í 1. deild kvenna

Öruggur sigur KFG í Garðabæ og mikil spenna í 1. deild kvenna

Fjórir leikir fóru fram í 1. deildum karla og kvenna í kvöld þar sem boðið var upp á örugga heimasigra sem og flotta útisigra.  

Í 1. deild karla hafði KFG betur gegn Hamri í Garðabæ þar sem heimamenn innbyrtu tíu stiga sigur, 99–89, eftir fjörugan og stigaháan leik.  

Í 1. deild kvenna fóru þrír leikir fram. Þór frá Þorlákshöfn sótti öruggan 90–72 sigur gegn ungmennaliði Hauka á Ásvöllum. Á Selfossi sýndu heimakonur mikla yfirburði þegar þær lögðu Skallagrím að velli með 22 stiga mun, 93–71. Þá hafði ÍR betur gegn Njarðvík b í hörkuleik þar sem Breiðhyltingar fóru heim með stigin tvö eftir sjö stiga sigur, 78–71.

Fréttir
- Auglýsing -