HomeÚti í heimiEvrópaÖflugur í sigri Bilbao sem mætir Alba Berlín í toppslag eftir tvær...

Öflugur í sigri Bilbao sem mætir Alba Berlín í toppslag eftir tvær vikur

Tryggvi Snær Hlinason fór mikinn með spænska liðinu Bilbao þegar liðið lagði Slavia Prague á heimavelli í Meistaradeild Evrópu í kvöld, 97:86.  

Íslenski landsliðsmiðherjinn nýtti sínar 24 mínútur á gólfinu frábærlega, skilaði 17 stigum, reif niður sex fráköst og gaf þrjár stoðsendingar í góðum heimasigri.  

Þetta var annar sigur Bilbao í jafnmörgum leikjum í G-riðli keppninnar, en liðið deilir toppsætinu með Alba Berlín, liði Martins Hermannssonar, sem einnig er taplaust. Fram undan er sannkallaður Íslendingaslagur í næstu umferð þegar Bilbao sækir Alba Berlín heim til Þýskalands eftir tvær vikur.

Fréttir
- Auglýsing -