Hlaðvarpsþátturinn Run & Gun verður í beinni útsendingu í spilaranum hér að neðan í kvöld. Stjórnendurnir Máté Dalmay og Tommi Steindórs eru mættir til leiks og fá til sín góðan gest en enginn annar en prinsinn af Álftanesi Gunnar Bjartur sest niður með þeim í kvöld.
Nóg er um að ræða eftir fjöruga opnunarviku, en í þættinum verður fyrsta umferðin í Bónus deild karla gerð rækilega upp. Farið verður yfir helstu tilþrifin, óvænt úrslit og frammistöðu liðanna ásamt því að spáð verður í spilin fyrir næstu umferð. Hægt er að fylgjast með allri umræðunni í beinni útsendingu í spilaranum hér að neðan.




