Fjórir leikir fara fram í 1. deildum karla og kvenna í kvöld, þrír í kvenna og einn í karlaflokki.
Í 1. deild kvenna hefjast tveir leikir klukkan 19:15 þegar Haukar u taka á móti Þór frá Þorlákshöfn og Selfoss mætir Skallagrími. Þá lýkur kvennaleikjum kvöldsins klukkan 19:30 þegar Njarðvík b fær ÍR í heimsókn.
Í 1. deild karla er einn leikur á dagskrá en þar eigast við KFG og Hamar klukkan 19:15.




