HomeBónus deildinBónus deild kvennaGrindavík lék sér að Tindastól í síkinu á Sauðárkróki

Grindavík lék sér að Tindastól í síkinu á Sauðárkróki

Tindastóll tók á móti Grindavík í Bónus deild kvenna í körfuknattleik í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld. Stólastúlkur höfðu sigrað í fyrstu 2 leikjum sínum í deildinni, gegn Keflavík og Fjölni og Grindavík hafði unnið Ármann og Hauka.

Jafnræði var með liðunum til að byrja með og heimastúlkur voru að finna leiðir gegn vel mönnuðu liði gestanna. Um miðjan fyrsta fjórðung tók Abby Beeman þó til sinna ráða, í stöðunni 12-8 fyrir Stóla, og skoraði 9 af 11 stigum Grindavíkur það sem eftir lifði leikhlutans, þar af lygilegan flautuþrist í lokin. Staðan 16-19 að honum loknum. Abby hélt síðan uppteknum hætti í öðrum leikhluta, skoraði 6 stig sjálf og fóðraði liðsfélaga sína óspart. Staðan 28-48 í hálfleik og heimastúlkur heillum horfnar í sóknarleik sínum.

Gestirnir héldu áfram að herða skrúfurnar í seinni hálfleik og náðu mest 27 stiga forystu í 3. leikhluta og 29 stigum þegar rúmar 2 mínútur lifðu leiks. Sigurinn aldrei í hættu og þær gátu leyft sér að rótera liði sínu vel.

Hjá heimakonum var Fulmore atkvæðamest með 21 stig og 18 fráköst en var að klikka fullmikið undir körfunni. Ana Clara Paz bætti við 14 stigum. Hjá gestunum var Abby frábær og stjórnaði leiknum frá A-Ö. Hún endaði með 24 stig og 7 stoðsendingar.

Tölfræði leiksins

Viðtöl :

Fréttir
- Auglýsing -