Einn leikur er á dagskrá í 1. deild kvenna í körfuknattleik í dag þar sem Skallagrímur tekur á móti Þór Akureyri í Fjósinu í Borgarnesi klukkan 16:00.
Mikil eftirvænting ríkir í Borgarnesi fyrir leiknum, enda stígur kvennalið Skallagríms nú aftur inn á keppnisvöllinn eftir hlé með nýtt og heimamannabyggt lið. Fyrir fram má búast við hörkuslag þegar norðankonur mæta í heimsókn í Fjósið.




