Landsliðsbakvörðurinn Elvar Már Friðriksson skilaði 14 stigum, þremur fráköstum, þremur stoðsendingum og einum stolnum bolta fyrir Neptunas í litháísku úrvalsdeildinni í dag.
Framlag hans dugði þó ekki til sigurs í 5. umferð deildarinnar þar sem Neptunas mátti sætta sig við níu stiga tap gegn Rytas, 86–77. Neptunas mætti af miklum krafti inn í leikinn og hélt forystunni allan fyrri hálfleikinn, en gestirnir í Rytas söðluðu um í seinni hálfleik og gerðu út um leikinn með góðum spretti í fjórða leikhluta.




