Skallgrímur heldur áfram að þétta raðirnar hjá meistaraflokki kvenna og hefur samið við fjóra heimamenn sem munu taka slaginn í Fjósinu í vetur.
Félagið greindi frá samningum við Júlíu Carli, Karen Mundu, Valborgu og Heiðu (Aðalheiði Ellu).
Júlía kemur inn í bakvarðasveitina og segir þjálfarinn hana búa yfir góðu og fjölbreyttu vopnabúri, en sjálf segist Júlía afar spennt fyrir uppbyggingunni. Karen Munda mætir með dýrmæta reynslu og bein í nefinu, og hlakkar hún til að sjá liðið vaxa og gefa ungu kynslóðinni góðar fyrirmyndir innan félagsins. Þá er Valborg sögð frábær liðsfélagi sem muni nýtast hópnum vel á komandi vetri. Að lokum mun Heiða (Aðalheiður Ella) styrkja teiginn sem öflugur miðherji með mikla reynslu og góðan grunn.
Mikil tilhlökkun ríkir í Borgarnesi fyrir komandi tímabili þar sem liðið er að stærstum hluta skipað heimastelpum sem ætla að láta til sín taka á nýju.








