Njarðvíkingar fengu Tindastól í heimsókn í 1. umferð Bónusdeildar karla í kvöld. Njarðvíkingar mættu til leiks sem “undir hundar” og ekki bætti úr að Sadio Dacoure er meiddur og verður frá næstu vikur. Njarðvíkingar voru hinsvegar ekki lengi að finna staðgengil Sadio þar sem að hinn síungi Fotis Lambropolis var mættur í grænt á ný og tekur hann slaginn með Njarðvíkingum í vetur. Tindastóll mættu hisvegar full mannaðir þó það hafi breyst í miðjum leik og höfðu tök á verkefninu frá fyrstu mínútu. Tindastóll hafði komið sér í 11 stiga forskot strax eftir fyrsta leikhluta í stöðunni 15:26. Í raun engin flugeldasýning hjá hvorugu liðinu á þessum tímapunkti en gestirnir nokkuð öflugri í sínum leik.
Drungilas meiðist
Þessi um 10 stiga munur hélst á liðunum allt til þegar tvær mínútur voru til hálfleiks þá mörgum til undrunar jöfnuðu Njarðvíkingar leikinn í 40 stigum. 42:44 var staðan í hálfleik eftir fína baráttu hjá heimamönnum í loka kafla fyrri hálfleiks.
Tindstóll skoruðu fyrstu 7 stig seinni hálfleiks og í einmitt þessu sjöunda stigi dró til tíðinda þar sem að Adomas Drungilas virtist koma illa niður á ökklann. Kappinn sem sjaldan kvartar hljómaði aumur og ekki leit þetta vel út. Þykir líklegt að meiðslin séu þess eðlis að hann verði frá í einhvern tíma ef dæmt er af því að hann var studdur af velli og kom ekki meira við sögu. Við þetta riðlaðist leikur gestana og Njarðvíkingar nýttu tækifærið. Jafnræði var með liðunum út þriðja fjórðung og Njarðvíkingar virkilega að láta gestina hafa fyrir hlutunum.
Smá mistök heimamanna dýrkeypt
Á lokaspretti leiksins voru það ótrúleg smá mistök sem Njarðvíkingar gerðu sig seka um sem gerðu vonir þeirra að stela sigrinum mikilvæga að engu. Það ofaná gæði Tindastóls liðsins gerði það að verkum að Tindastólsmenn rúlluð heim í Skagafjörðinn með sigurinn mikilvæga.

Gæðamunurinn
Það var ekki miklu að búast við frá þessu Njarðvíkurliði ef miðað er við æfingaleiki þeirra fyrir mót, en frammistaða kvöldsins var bara nokkuð vel yfir því pari sem undirritaður setti upp fyrir kvöldið. Hinsvegar átti maður von á töluvert sterkara liði Tindastóls ef miðað er við framgöngu þeirra á meginlandinu sl. vikur. Gæði hóps Tindastóls er hinsvegar þannig að það kom aldrei óðagot á liðið þrátt fyrir að Njarðvíkingar þjarmað að þeim allt þar til um 2 mínútur voru eftir af leiknum. Njarðvíkingar geta svo sem unað ágætlega við kvöldið þó vissulega hafi þeir viljað sigurinn. Fínn barningur í liðinu og oft á tíðum frábært spil. Makye Richard erlendur leikmaður Njarðvíkur er hörku leikmaður sem setti 19 stig í kvöld þrátt fyrir slaka hittni en á hinum enda vallarins spilaði hann hágæða vörn. En fyrst við erum að ræða leikmenn þá er það nú þannig að gæðamunurinn á milli leikmanna liðanna er þó nokkur. Á meðan Tindastólsmenn geta spilað nokkuð auðveldlega á 10 leikmönnum eru Njarðvíkingar að slást við meiðsli og annað innan síns hóps.




