Valur hefur samið við hinn bráðefnilega bakvörð Írisi Lóu Hermannsdóttur, en hún skrifaði undir sinn fyrsta samning við meistaraflokk félagsins.
Íris Lóa, sem er einungis 15 ára gömul, kemur upp úr yngri flokka starfi Vals. Hún lék með U15 ára landsliði Íslands síðastliðið sumar og mun nú taka sín fyrstu skref og safna dýrmætri reynslu með meistaraflokki félagsins í vetur.




