HomeBónus deildinBónus deild karlaÖruggur sigur gegn Ármanni í Laugardalshöll

Öruggur sigur gegn Ármanni í Laugardalshöll

Keflvíkingar hófu tímabilið í Bónus deild karla af miklum krafti í kvöld þegar þeir lögðu Ármann að velli, 108–90, í Laugardalshöllinni.

Gestirnir af Suðurnesjum náðu frumkvæðinu strax í fyrsta leikhluta (31–23) en Ármenningar sýndu flotta takta í öðrum leikhluta og skoruðu 29 stig. Staðan í leikhléi var 62–52 fyrir Keflavík.

Í þriðja leikhluta gerðu gestirnir hins vegar út um leikinn með frábærri skotnýtingu og unnu leikhlutann 33–15 til að ná yfir tuttugu stiga forskoti. Heimamenn löguðu stöðuna á lokasprettinum með 23–13 áhlaupi í fjórða leikhluta en sigur Keflvíkinga var aldrei í hættu.

Keflavík hitti frábærlega í leiknum, með 56% nýtingu úr leik (41/72) og 41% í þriggja stiga skotum (13/31). Jamir Chaplin fór mikinn í liði Keflavíkur með 28 stig og 7 fráköst. Hilmar Pétursson átti sömuleiðis frábæran leik með 19 stig, 6 fráköst og 5 stoðsendingar, Jaka Brodnik setti 16 stig og Bragi Guðmundsson stjórnaði leiknum vel með 9 fráköst og 7 stoðsendingar.

Hjá Ármanni var Ingvi Þór Guðmundsson atkvæðamestur með flotta alhliða frammistöðu; 15 stig, 6 fráköst og 5 stoðsendingar. Adam Johanson skilaði 13 stigum og Arnaldur Grímsson bætti við 12 stigum.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -