HomeBónus deildinBónus deild karlaNá ekki í Kane tveimur dögum fyrir mót: Tvísýnt hvort stjarnan mæti...

Ná ekki í Kane tveimur dögum fyrir mót: Tvísýnt hvort stjarnan mæti aftur til Grindavíkur

Vefmiðillinn Vísir greinir frá því að mikil óvissa ríki um hvort DeAndre Kane gangi til liðs við Íslandsmeistara Grindavíkur fyrir komandi leiktíð í Bónus deild karla.

Grindvíkingum hefur ekki tekist að ná símasambandi við kraftframherjann undanfarna daga, en aðeins tveir dagar eru í að deildin fari af stað hjá liðinu.  

Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, staðfestir í samtali við Vísi að ekki hafi náðst í Kane í um fjóra daga og staðan verði tvísýnni með hverjum deginum sem líður. Þó segir Jóhann að það sé ekkert nýtt að erfitt sé að ná í hann yfir sumarið og málið sé enn á borðinu sem persónulegt mál sem tekið hafi á leikmanninn. Liðið sé enn ekki farið að leita að öðrum kostum en muni þurfa að skoða sín mál gefi hann sig ekki fram á allra næstu dögum.  

Kane lék stórt hlutverk þegar Grindavík fagnaði Íslandsmeistaratitlinum síðasta vor en lenti í vandræðum við heimkomuna til Bandaríkjanna vegna ógreiddra meðlagsgreiðslna upp á rúmar 12 milljónir króna. Honum var sleppt stuttu síðar og stóð til að hann myndi snúa aftur til landsins í haust. Grindavík spilaði án hans í Meistarakeppni KKÍ um síðustu helgi, þar sem Ólafur Ólafsson og Daniel Mortensen voru sömuleiðis fjarverandi vegna meiðsla, en Jeremy Pargo var nýlentur og sat hjá. Samkvæmt Jóhanni gæti Ólafur verið frá fram að áramótum á meðan Mortensen er væntanlegur innan tveggja vikna.  

Fréttina í heild sinni má lesa á vef Vísis hér.

Fréttir
- Auglýsing -