HomeBónus deildinBónus deild kvennaMörðu Hauka eftir mikinn baráttuleik í HS Orku-höllinni

Mörðu Hauka eftir mikinn baráttuleik í HS Orku-höllinni

Grindavík fagnaði sigri gegn Haukum, 81–71, í Bónus deild kvenna í kvöld eftir sveiflukendan leik á Suðurnesjum.  

Leikurinn var hnífjafn í fyrri hálfleik þar sem heimakonur leiddu með tveimur stigum eftir fyrsta leikhluta, 27–25, og héldu sex stiga forystu inn í hléið, 40–34.

Haukar mættu hins vegar af miklum krafti inn í seinni hálfleikinn, unnu þriðja leikhlutann 26–18 og náðu forystunni. Grindvíkingar sýndu aftur á móti mikla seiglu í fjórða leikhluta, snéru taflinu sér í vil með öflugri vörn og unnu leikhlutann 23–11 til að landa tíu stiga sigri.  

Grindavík hafði betur í baráttunni undir körfunni og tók alls 50 fráköst gegn 41 frákasti Hauka. Abby Claire Beeman var frábær í liði heimakvenna með glæsilega tvennu, 22 stig og 12 stoðsendingar ásamt því að rífa niður 8 fráköst. Tegan Graham skoraði 18 stig og Farhiya Abdi bætti við 14 stigum og 8 fráköstum, auk þess sem Isabella Ósk Sigurðardóttir tók 12 fráköst.

Í liði Hauka var Tinna Guðrún Alexandersdóttir stigahæst með 18 stig og 6 stoðsendingar, Jadakiss Nashi Guinn skoraði 15 stig og tók 7 fráköst og Sigrún Björg Ólafsdóttir barðist ötullega með 13 fráköst og 5 stoðsendingar.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -