Annarri umferð Bónus deildar kvenna lýkur í kvöld með tveimur hörkuleikjum sem báðir hefjast klukkan 19:15.
Í Grafarvogi tekur Fjölnir á móti nýliðum Tindastóls í Dalhúsum á meðan boðið verður upp á nágrannaslag á Suðurnesjum þegar Njarðvík og Keflavík eigast við í IceMar-höllinni. Mikil eftirvænting er fyrir Suðurnesjaslagnum þar sem grannarnir mætast í fyrsta sinn á tímabilinu, en bæði lið ætla sér stóra hluti í deildinni í vetur.




