Meistaraviðureign KKÍ fór fram í IceMar-Höllinni í Njarðvík í kvöld þar sem Íslandsmeistarar Njarðvíkur og bikarmeistarar Keflavíkur áttust við. Njarðvíkingar höfðu betur þetta kvöldið 83-78 eftir jafnan og spennandi leik.
Dinkins leiddi Njarðvík í kvöld með 19 stig, 5 fráköst og 5 stoðsendingar og Ásta Júlía Grímsdóttir lék einnig vel með 14 stig, 11 fráköst og 6 stoðsendingar. Hjá Keflavík var Thelma Dís fremst meðal jafningja með 27 stig og 9 fráköst og Emelía Ósk Gunnarsdóttir bætti við 20 stigum og 6 fráköstum í liði Keflavíkur og var eini leikmaður vallarins með tvö varin skot.
Danielle Rodriguez lék ekki með Njarðvík í kvöld en var þó á skýrslu og þá var Hannah Little heldur ekki í búning hjá Keflavík svo bæði lið vantaði kanónur í sína hópa þetta kvöldið.
Íslandsmeistarar Njarðvíkur byrjuðu betur, leiddu 30-24 að loknum fyrsta leikhluta en bikarmeistarar Keflavíkur stoppuðu vel í varnargötin sín í öðrum hluta, héldu Njarðvík í aðeins 10 stigum og minnkuðu muninn í 40-39 og þannig stóðu leikar í hálfleik.
Helena Rafnsdóttir var atkvæðamest hjá Njarðvík í fyrri hálfleik með 8 stig en Thelma Dís Ágústsdóttir var með 14 stig í liði Keflavíkur.
Hinn fínasti fyrri hálfleikur, jafn og spennandi. Keflvíkingar óhræddir við að láta vaða fyrir utan með 5-19 í þristum fyrstu 20 mínútur leiksins en Njarðvík 2-10. Þá var Ásta Júlía dugleg að finna nýju liðsfélagana sína í Njarðvík með 5 stoðsendingar í fyrri hálfleik.
Dinkins lét vel að sér kveða í þriðja og dreif Njarðvíkursóknina áfram svo heimakonur leiddu 67-62 að loknum þriðja. Keflavíkurmegin var Thelma Dís enn að ógna og spila virkilega vel og komin með 24 stig eftir þrjá leikhluta.
Snemma í fjórða komst Njarðvík í 76-62 og héldu nú flestir að þar væri björninn unninn en öflugur lokasprettur hjá Keflavík gaf þeim séns en það dugði ekki í kvöld.
Viðureign kvöldsins gefur flott fyrirheit fyrir tímabilið, jafn og skemmtilegur leikur þó vissulega sé bara haust hjá öllum liðum þá var margt mjög gott að sjá á leik liðanna í kvöld.




