Körfuboltaáhugafólk fær kærkominn liðsstyrk annað kvöld, miðvikudag, þegar fyrsti þátturinn af Run and Gun fer í loftið í beinni útsendingu klukkan 21:00.
Þættinum er stýrt af þeim Mate Dalmay og Tomma Steindórs, sem munu kryfja íslenska körfuboltann af stakri nákvæmni í vetur.
Fyrirkomulag þáttanna verður með þeim hætti að hitað verður vikulega upp fyrir komandi átök með áherslu á mismunandi landshluta hverju sinni. Í fyrsta þættinum annað kvöld verður sjónum beint að nágrannaliðunum Stjörnunni og Álftanesi, þar sem liðin verða tekin fyrir, leikmannahóparnir skoðaðir og spáð í spilin fyrir átökin fram undan.
Bein útsending hefst klukkan 21:00 annað kvöld, miðvikudag, og ættu körfuboltaunnendur ekki að láta hana framhjá sér fara, en hlekkur á þáttinn verður aðgengilegur hér á Körfunni.




