HomeNeðri deildir1. deild karlaFlottur útisigur ÍA gegn Njarðvík í IceMar Höllinni

Flottur útisigur ÍA gegn Njarðvík í IceMar Höllinni

Skagamenn sóttu öflugan útisigur gegn Njarðvík í æfingaleik meistaraflokks karla í kvöld, en leiknum lauk með tólf stiga sigri ÍA, 93–81.

Gestirnir af Akranesi höfðu frumkvæðið lengst af og leiddu eftir jafnan fyrri hálfleik, 43–41, áður en þeir juku forskotið í síðari hálfleik.

Atkvæðamestir í liði ÍA voru Kristófer og Sölvi með 18 stig hvor, en næstir komu Marius með 16 stig og Gojko með 10 stig. Hjá Njarðvík var Makye drjúgastur í stigaskorun með 28 stig, á meðan Isaiah og Brynjar bættu við 11 stigum hvor.

Ert þú með fréttir af æfingaleik? Sendu tölfræðina á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -