HomeNeðri deildir1. deild karlaLeika í bleikum treyjum í október

Leika í bleikum treyjum í október

Haukar munu leika í sérstökum bleikum búningum í októbermánuði til stuðnings Bleiku slaufunni og baráttunni gegn krabbameini.

Stuðningsmönnum gefst nú kostur á að tryggja sér treyjuna, sem merkt er ártalinu ’26 og framleidd í takmörkuðu upplagi. Treyjurnar kosta á bilinu 8.990 til 11.990 krónur, og renna 1.000 krónur af hverri seldri treyju óskipt til Krabbameinsfélagsins í samstarfi við félagið.

Bleiki dagurinn er haldinn hátíðlegur 21. október og þurfa pantanir að berast fyrir mánudaginn 28. september svo unnt sé að afhenda treyjurnar fyrir þann tíma. Sala fer fram í gegnum vefverslunina korfubolti.is.

Fréttir
- Auglýsing -