HomeFréttirÓvæntur sigur Malí og Frakkar áfram á flugi á HM

Óvæntur sigur Malí og Frakkar áfram á flugi á HM

Annar keppnisdagur lokamóts HM kvenna bauð upp á mikla spennu og óvænt úrslit þegar fjórir leikir fóru fram í dag.

Stærstu vendingar dagsins urðu strax í fyrsta leik þegar lið Malí kom verulega á óvart og lagði sterkt lið Spánverja að velli, 82–73. Ungverjar unnu sömuleiðis dýrmætan og afar nauman 71–67 sigur gegn Nígeríu eftir mikla baráttu allt til loka.

Hérna eru beinar útsendingar RÚV

Þjóðverjar réttu svo vel úr kútnum eftir tap gærdagsins og höfðu betur gegn Japan, 74–58. Frakkar héldu hins vegar uppteknum hætti, sýndu mikla yfirburði og unnu sinn annan stórsigur á mótinu þegar þeir lögðu Suður-Kóreu með 26 stiga mun, 95–69.

Keppnin heldur áfram á morgun, sunnudag, með fjórum leikjum: Tyrkland mætir Ástralíu (kl. 09:30), Kína og Tékkland eigast við (kl. 12:30), Púertó Ríkó glímir við Belgíu (kl. 15:45) og loks mætast Ítalía og Bandaríkin í stórleik kvöldsins (kl. 18:45), sem verður í beinni útsendingu á RÚV 2.

Hérna er heimasíða mótsins

Fréttir
- Auglýsing -