Stjarnan hefur gengið frá tveggja ára samningi við hina efnilegu Valdísi Helgu Alexandersdóttur, sem mun leika með liðinu í Bónusdeild kvenna á komandi keppnistímabili.
Valdís Helga, sem er fædd árið 2010, hefur leikið upp alla yngri flokka hjá Snæfelli. Þrátt fyrir ungan aldur var hún í stóru hlutverki með meistaraflokki Snæfells í 1. deildinni á síðustu leiktíð, þar sem hún skilaði um 16 stigum og 7 fráköstum að meðaltali í leik.
Þá hefur hún verið lykilmaður í yngri landsliðum Íslands, bæði með U15 og síðast með U16 ára liðinu sem tók þátt í Evrópukeppninni í Grikklandi, þar sem Ísland hafnaði meðal 22 efstu þjóða álfunnar. Stjörnumenn fagna komu hennar og hlakka til að fylgjast með henni á gólfinu í ÞG Verk höllinni í vetur.




