HomeBónus deildinBónus deild karlaSjö efnilegir leikmenn sem verða að fá tækifæri í vetur

Sjö efnilegir leikmenn sem verða að fá tækifæri í vetur

Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn í loftið þar sem farið er yfir allt það helsta í íslenskum körfubolta.

Auk þess að rýna í stórleiki karlalandsliðsins í undankeppni HM og erfiðustu leikjaprógrömin í upphafi móts, var rýnt sérstaklega í framtíðina í Bónusdeild karla. Ungir og hungraðir leikmenn eru líflína deildarinnar og stilltu strákarnir því upp lista yfir þá ungu kappa sem þeir vilja sjá fá tækifæri og mínútur á gólfinu á komandi leiktíð.

Hérna er Aukasendingin á Spotify

Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

Lars Erik Bragason

1.–2. sæti: Tilbúnir í stóra sviðið

Lars Erik Bragason (KR) og Viktor Jónas Lúðvíksson (Stjarnan):

Þeir deila efstu tveimur sætunum enda eru hér á ferð tveir af allra efnilegustu leikmönnum landsins. Lars hefur sýnt gríðarlegan vöxt og hefur fulla burði til að setja alvöru mark sitt á KR-liðið í vetur. Viktor hefur á sama tíma lengi verið eitt allra heitasta nafnið í yngri landsliðunum og býr yfir frábærri stærð, orku og leikskilningi. Það er kominn tími til að gefa þeim báðum alvöru hlutverk og leyfa þeim að bera ábyrgð á stóra sviðinu.

Viktor Jónas Lúðvíksson

3.–4. sæti: Á barmi þess að springa út

 Jakob Kári Leifsson (Stjarnan):

Annar Garðbæingur sem bíður eftir sínu stóra tækifæri. Jakob hefur alla burði til að láta að sér kveða í deildinni og nú reynir á að hann fái traustið og stöðugleika í spiltíma til að festa sig í sessi.

Jakob Kári Leifsson

 Magnús Dagur Svansson (Sindri):

Magnús sýndi frábæra spretti í 1. deildinni og átti stóran þátt í að koma Sindra upp á meðal þeirra bestu. Þá var hann frábær fyrir Ísland á nýliðnu sumri. Hann er leikmaður sem getur breytt takti leikja og það verður afar forvitnilegt að fylgjast með honum takast á við hraðann í efstu deild.

Magnús Dagur Svansson

5.–7. sæti: Framtíðin fái smjörþefinn

Jón Breki Sigurðarson (Stjarnan), Atli Freyr Haraldsson Katrínarson (Valur) og Davíð Breki Antonsson (Keflavík):

Hér er hópurinn ögn öðruvísi samansettur enda eru þessir strákar yngri, aðeins um 16 ára gamlir. Það býst auðvitað enginn við því að þeir springi beint út og spili 20–30 mínútur í leik, en Aukasendingin vill engu að síður sjá þá stíga inn á gólfið. Hvort sem það eru 3–5 mínútur hér og þar eða kærkomin tækifæri þegar færi gefst; það skiptir öllu máli að þessir ungu piltar fái að kynnast hraðanum og sjá gólfið í vetur.

Davíð Breki Antonsson
Jón Breki Sigurðarson
Atli Freyr Haraldsson Katrínarson
Fréttir
- Auglýsing -