HomeFréttirKKÍ leitar til hreyfingarinnar um íslensk heiti á nýjum villum FIBA

KKÍ leitar til hreyfingarinnar um íslensk heiti á nýjum villum FIBA

Alþjóða körfuknattleikssambandið, FIBA, hefur gefið út nýjar leikreglur sem taka gildi í haust. Meðal helstu breytinga er að hugtakið „óíþróttamannsleg villa“ fellur úr gildi í sinni fyrri mynd og hefur brotinu verið skipt upp í tvo aðskilda flokka: Disruptive foul og Flagrant foul.

Disruptive foul nær yfir villur sem framkvæmdar eru til að stöðva leikinn utan anda körfuknattleiksins án þess þó að teljast harkalegar. Ef brotið er hins vegar talið harkalegt skal dæma Flagrant foul, nema atvikið sé svo alvarlegt að það verðskuldi brottrekstrarvillu.

Vegna þessara reglubreytinga leitar Körfuknattleikssamband Íslands (KKÍ) nú til áhugafólks og iðkenda eftir góðum, íslenskum þýðingum á þessum nýju villutegundum. Ábendingar og tillögur má senda á netfangið [email protected] eða í athugasemdum við tilkynningu sambandsins á samfélagsmiðlum.

Fréttir
- Auglýsing -