Skallagrímur hefur samið við bosnísk-serbneska leikmanninn Miljan Markovic fyrir komandi keppnistímabil.
Markovic er 205 sentímetrar á hæð og leikur hér á landi í fyrsta sinn. Hann kemur með mikla reynslu úr sterkum deildum erlendis og er ætlað að færa liðinu ró, yfirvegun og hjálpa yngri leikmönnum félagsins að taka næstu skref. Pálmi, þjálfari Skallagríms, segir að leikmaðurinn muni smellpassa inn í hópinn strax frá fyrstu mínútu.
Sjálfur lýsir Markovic yfir mikilli ánægju með andann í liðinu sem og þjálfarateymið. Hann kveðst spenntur fyrir komandi tímabili í Borgarnesi og stefnir ótrauður á að koma liðinu í úrslitakeppnina með reynslu sinni og gæðum.




