HomeFréttirFimm hlutir sem Aukasendingin vill sjá í næsta landsliðsglugga

Fimm hlutir sem Aukasendingin vill sjá í næsta landsliðsglugga

Eftir krefjandi verkefni karlalandsliðsins í undankeppni HM gegn stórþjóðum Serbíu og Tyrklands var margt rætt og krufið í nýjasta þætti Aukasendingarinnar.

Þótt andstæðingarnir hafi verið af dýrari gerðinni sitja ýmsar spurningar eftir um framhaldið.

Hérna er Aukasendingin á Spotify

Í þættinum var hent í klassískan „overreaction“-lista þar sem farið er yfir fimm hluti sem íslenska liðið þarf nauðsynlega að laga, breyta eða framkvæma fyrir næsta glugga.

Hinn pólski Jordan Loyd

5. Kana. Upp með veskið!

Þetta þarf ekki að vera flókið: Ellefu plús einn, setjum þetta bara beint á fjárlög. Malachi Flynn varð tyrkneskur ríkisborgari í febrúar, Shane Larkin og Thomas Walkup eru löngu orðnir Evrópubúar, og þjóðir eins og Pólland (Jordan Loyd), Grikkland (Tyler Dorsey/Walkup), Ítalía (Darius Thompson) og Búlgaría (Cody Miller-McIntyre) nýta sér allar þessa reglu út í hörgul. Hvenær fáum við okkar mann?

4. Skárri varnarróteringar

Við getum einfaldlega ekki skilið bestu skyttur Evrópu eftir svona galopnar. Þetta voru hrein æfingaskot á köflum. Skiljanlega er liðið smærra í vexti og reynir að búa til ringulreið og tapaða bolta með mikilli hjálparvörn, en það hefur einfaldlega ekki verið að skila nægilega góðum árangri gegn þessum gæðum.

3. „Tweaka“ sóknarleikinn

Lið nenna í alvörunni að „scouta“ okkur í dag. Við fengum lítið sem ekkert út úr rúllinu og lítið um opin skot. Handoff-leikurinn með Tryggva og hefðbundin pikkerí skiluðu of litlu. Þegar allt er lokað þarf að bregðast við: koma miðjuleiknum (midrange) í gang eða finna nýjar leiðir til að brjóta upp vörnina.

Martin Hermannsson

2. Elvar og Martin báðir samtímis á deginum sínum

Báðir sýndu flotta spretti í glugganum, sérstaklega Martin úti í Serbíu. Draumasviðsmyndin fyrir næsta glugga er leikur þar sem báðir hrökkva í gang á sama tíma: Elvar keyrir upp tempóið af fullum krafti, Martin dreifir spilinu („dishing dimes“) og báðir enda vel yfir 20 stigum.

1. Meiri töffaraskap og klókindi

Það sást smá hik og skjálfti í báðum leikjunum þegar á móti blés. Við þurfum að þora að snúa mómentinu okkur í vil: skjóta þegar við sjáum hringinn af fullu sjálfstrausti, dræva af krafti og sækja snertingu. Það á ekkert að koma okkur á óvart að lið mæti af hörku til að keppa við okkur — við verðum að læra að spila beint í gegnum það.

Fréttir
- Auglýsing -