HomeBónus deildinBónus deild kvennaSíðasta púslið í Vesturbæinn

Síðasta púslið í Vesturbæinn

KR hefur samið við bandaríska framherjann Aaliyah Pitts um að leika með meistaraflokki kvenna á komandi keppnistímabili.

Pitts, sem er 183 sentímetrar á hæð, lék á háskólaárum sínum með University of Virginia, Western Kentucky University og loks Florida International University, þar sem hún var með 7,2 stig og 6,0 fráköst að meðaltali í leik. Á síðustu leiktíð hóf hún tímabilið með Basket Ostrava í efstu deild Tékklands (5,6 stig og 4,5 fráköst) áður en hún færði sig yfir til GDAR í næstefstu deild Portúgals, þar sem hún lauk vetrinum með 11,8 stig, 8,6 fráköst og 2,0 stoðsendingar að meðaltali.

Daníel Andri Halldórsson, þjálfari KR, segir komu Pitts vera mikinn styrk fyrir hópinn: „Við erum virkilega ánægð að fá Aaliyah til KR. Hún er duglegur og metnaðarfullur leikmaður sem kemur inn með mikinn kraft og verður mikilvægur partur af liðinu okkar. Við teljum að hún sé síðasta púslið í hópinn fyrir hörku tímabil sem fram undan er.“

Fréttir
- Auglýsing -