Sindri hefur tryggt sér starfskrafta sænska landsliðsmannsins Craig Lecesne, sem mun leika með liðinu í Bónusdeildinni á komandi tímabili.
Lecesne kemur til Hornfirðinga með mikla reynslu. Hann lék í bandaríska háskólaboltanum með Pepperdine og San José State áður en hann hélt í atvinnumennsku í Evrópu. Þar hefur hann spilað í Svíþjóð, á Spáni, í Þýskalandi, Rúmeníu og Finnlandi, auk þess að eiga að baki landsleiki fyrir sænska A-landsliðið.
Forráðamenn Sindra lýsa Lecesne sem afar fjölhæfum leikmanni sem getur látið til sín taka á báðum endum vallarins. Er mikil ánægja á Höfn með að fá jafn reyndan, líkamlega sterkan og öflugan leikmann til að styrkja ungt og spennandi lið félagsins fyrir átökin í vetur.




