Fjórða árið í röð fór hið árlega 3 á 3 götukörfuboltamót í Garðinum hans Gústa fram á Akureyri sem hluti af Akureyrarvöku. Mótið er haldið til minningar um hinn ástsæla körfuknattleiksþjálfara og Þórsara, Ágúst H. Guðmundsson, í kringum afmælisdag hans, 26. ágúst.
Sem fyrr báru allar sérstakar viðurkenningar skírskotun í minningu Gústa: Boston (bestu tilþrifin), Gústinn (háttvísisverðlaun), Peysan (flottasta liðið) og Áttan (besti leikmaðurinn). Verðlaunaafhendingin var í höndum sjálfs Pollans, sendiherra Pollamóts Þórs og Skógarbaðanna.

Sigurvegarar og viðurkenningar í yngri flokkum
- 13 ára og yngri (drengir): Sófaklessur
- 15 ára og yngri (stúlkur): The Big 3
- 15 ára og yngri (drengir): Kúlugúbbar
- Boston (bestu tilþrifin): Skrímslin
- Gústinn (háttvísisverðlaun): Svörtu sauðirnir
- Peysan (flottasta liðið): Dýragarðurinn
- Áttan (besti leikmaður U13 kk): Kristján Ómarsson (Sófaklessur)
- Áttan (besti leikmaður U15 kvk): María Jónasdóttir (The Big 3)
- Áttan (besti leikmaður U15 kk): Þorgeir Gauti Finnsson (Kúlúgúbbar)
Sigurvegarar og viðurkenningar í opnum flokki
- Sigurvegarar: Grunnatriðin
- Boston (bestu tilþrifin): IcePhil
- Gústinn (háttvísisverðlaun): Washed Wizards
- Peysan (flottasta liðið): Farmer and Sons
- Áttan (besti leikmaður): Elvar Steinn Traustason (Grunnatriðin)

Mótshaldarar færa öllum keppendum, gestum, sjálfboðaliðum og Akureyrarbæ bestu þakkir fyrir aðkomuna og hlakka til að sjá alla aftur að ári á glæsilegasta útikörfuboltavelli landsins.




