HomeBónus deildinBónus deild kvennaSemur við Brahe Basket í Svíþjóð

Semur við Brahe Basket í Svíþjóð

Hin unga og efnilega Heiðrún Björg Hlynsdóttir mun leika í sænsku úrvalsdeildinni á komandi keppnistímabili eftir að hafa samið við sænska félagið Brahe Basket.

Heiðrún Björg hefur verið lykilmaður hjá Stjörnunni undanfarin ár og leikið í þrjú tímabil með meistaraflokki í Bónusdeildinni. Þá á hún að baki leiki fyrir öll yngri landslið Íslands, nú síðast með U20 ára landsliðinu sem náði frábærum árangri í A-deild Evrópumótsins í sumar. Stjörnumenn fagna þessu frábæra tækifæri fyrir Heiðrúnu, óska henni góðs gengis í atvinnumennskunni og hlakka til að fylgjast með henni í sænska boltanum í vetur.

Fréttir
- Auglýsing -