Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir liði Tyrklands í Laugardalshöll í kvöld klukkan 19:30 í undankeppni HM 2027. Um er að ræða seinni leik liðsins í þessum fyrsta glugga keppninnar eftir leikinn gegn Serbíu í Belgrad fyrir helgi. Tyrkir koma ósigraðir til leiks og sitja á toppi riðilsins, en miðasala fer fram í gegnum appið Stubb auk þess sem leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV.
Tólf manna hópur Íslands fyrir leikinn í kvöld er skipaður þeim Hilmari Smára Henningssyni, Jóni Axel Guðmundssyni, Þóri Guðmundi Þorbjarnarsyni, Elvari Má Friðrikssyni, Kára Jónssyni, Kristni Pálssyni, Martin Hermannssyni, Sigurði Péturssyni, Tryggva Snæ Hlinasyni, Styrmi Snæ Þrastarsyni, Bjarna Guðmann Jónssyni og Sigtryggi Arnari Björnssyni.




