HomeFréttirÞetta er hópurinn sem mætir Serbíu kl. 18:00 í Belgrad

Þetta er hópurinn sem mætir Serbíu kl. 18:00 í Belgrad

Íslenski leikmannahópurinn sem mætir Serbíu í kvöld í fyrsta leik seinni hluta undankeppni HM 2027 hefur verið opinberaður. Leikurinn fer fram í Belgrade Arena í Belgrad og hefst klukkan 18:00 að íslenskum tíma, en hann verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV.

Tólf leikmenn skipa íslenska hópinn í dag: Hilmar Smári Henningsson, Jón Axel Guðmundsson, Elvar Már Friðriksson, Kári Jónsson, Kristinn Pálsson, Martin Hermannsson, Bragi Guðmundsson, Sigurður Pétursson, Tryggvi Snær Hlinason, Styrmir Snær Þrastarson, Bjarni Guðmann Jónsson og Sigtryggur Arnar Björnsson.

Liðið er vel mannað reynslumiklum leikmönnum jafnt sem ungum og efnilegum köppum sem munu reyna að sækja mikilvæg stig gegn sterku serbnesku liði. Áfram Ísland.

Fréttir
- Auglýsing -