HomeBónus deildinBónus deild kvennaSigrún Sól Brjánsdóttir til Westtown í Bandaríkjunum

Sigrún Sól Brjánsdóttir til Westtown í Bandaríkjunum

Hin bráðefnilega Sigrún Sól Brjánsdóttir mun ekki leika með Stjörnunni á komandi leiktíð heldur færa sig um set til Bandaríkjanna, þar sem hún hefur samið við Westtown High School í Fíladelfíu. Lið skólans er afar hátt skrifað á landsvísu vestanhafs og er þetta frábært tækifæri fyrir hana til að máta sig við bestu ungu leikmenn vestan hafs.

Sigrún Sól hefur leikið með Stjörnunni allan sinn feril. Á síðustu leiktíð spilaði hún sínar fyrstu mínútur í Bónusdeildinni samhliða lykilhlutverki í 1. deildar liði félagsins. Þá á hún að baki fjölmarga landsleiki með U15 og U16 ára liðum Íslands og lék síðast stórt hlutverk með U18 ára landsliðinu sem stóð sig með miklum sóma í B-deild Evrópumótsins í sumar. Stjörnumenn óska henni góðs gengis og hlakka til að fylgjast með framgöngu hennar í vetur.

Fréttir
- Auglýsing -