HomeNeðri deildir1. deild kvennaHeldur til Bandaríkjanna í háskólaboltann

Heldur til Bandaríkjanna í háskólaboltann

Sigrún María Birgisdóttir mun ekki leika með Fjölni á komandi keppnistímabili. Hún hefur stigið næsta stóra skref á ferlinum og haldið til Bandaríkjanna þar sem hún mun spreyta sig í bandaríska háskólaboltanum.

Körfuknattleiksdeild Fjölnis kveður leikmanninn með hlýjum orðum og segist gríðarlega stolt af Sigrúnu Maríu. Félagið óskar henni innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar á nýjum vettvangi, en þar muni hún takast á við nýjar áskoranir og halda áfram að þróast sem körfuknattleiksmaður.

Fréttir
- Auglýsing -