Aukasendingin kom aftur saman á dögunum til að fínpússa og uppfæra spá sína fyrir komandi leiktíð í Bónusdeild karla 2026–27. Eftir frekari vendingar á leikmannamarkaðnum og nánari rýni á mannskap félaganna töldu sérfræðingar þáttarins rétt að endurskoða fyrri spá og gera á henni veigamiklar breytingar.
Hérna er hægt að hlusta á Aukasendinguna á Spotify
Samkvæmt nýrri og uppfærðri spá Aukasendingarinnar er Álftanasi spáð deildarmeistaratitlinum, en Tindastóll og KR fylgja fast á hæla þeirra í efstu þremur sætunum. Grindavík og Stjarnan skipa 4. og 5. sætið á meðan Keflavík og Njarðvík sitja í 6. og 7. sæti. Í neðri hluta töflunnar er ÍR spáð 8. sæti og síðasta sætinu inn í úrslitakeppnina, en Valur og Höttur sitja fyrir utan í 9. og 10. sæti. Á botninum er nýliðum og spútnikliðum Sindra og Ármanns spáð falli í 11. og 12. sæti.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Uppfærð spá Aukasendingarinnar fyrir Bónusdeild karla:
- Álftanes
- Tindastóll
- KR
- Grindavík
- Stjarnan
- Keflavík
- Njarðvík
- ÍR
- Valur
- Höttur
- Sindri
- Ármann




