Stjarnan hefur framlengt samning sinn við unga og efnilega bakvörðinn Jakob Kára Leifsson, sem mun leika með meistaraflokki félagsins í Bónusdeildinni í vetur.
Jakob Kári er fæddur árið 2008 og á að baki fjölmarga Íslands- og bikarmeistaratitla í yngri flokkum með Stjörnunni, þar sem hann hefur spilað óslitið frá tíu ára aldri. Hann lék stórt hlutverk með U18 ára landsliði Íslands á liðnu sumri og fagna Stjörnumenn því að halda þessum unga uppalda leikmanni í sínum röðum í ÞG Verk-höllinni á komandi leiktíð.




