HomeBónus deildinBónus deild karlaYfirgefur bikarmeistara KR og fer til Tékklands

Yfirgefur bikarmeistara KR og fer til Tékklands

Bandaríski framherjinn K.J. Doucet hefur samið við tékkneska félagið USK Praha fyrir komandi leiktíð.

Doucet lék síðast með KR á Íslandi á tímabilinu 2025–2026, þar sem hann átti flott tímabil og skilaði 18,0 stigum, 7,2 fráköstum og 2,0 stoðsendingum að meðaltali í leik. Hann tekur nú næsta skref á atvinnumannaferlinum í efstu deild í Tékklandi.

Fréttir
- Auglýsing -