HomeFréttirGóð endurkoma í fjórða leikhluta dugði Íslandi ekki í Lissabon

Góð endurkoma í fjórða leikhluta dugði Íslandi ekki í Lissabon

Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 15 stig og Rebekka Rut Steingrímsdóttir átti flottan leik með 14 stig, fjögur fráköst og fjórar stoðsendingar þegar íslenska kvennalandsliðið tapaði 72:63 fyrir Portúgal í dag.

Eftir jafnan fyrri hálfleik (36:31) sigu heimakonur fram úr í slökum þriðja leikhluta Íslands (19:8) og komust í 55:39. Íslenska liðið svaraði öflugt fyrir sig og vann lokafjórðunginn 24:17, en forskot Portúgala reyndist of mikið til að brúa.

Þetta var annar æfingaleikur þjóðanna á tveimur dögum, en Portúgal vann einnig fyrri leikinn í gær með 13 stiga mun, 66:53.

Fréttir
- Auglýsing -