Höttur hefur samið við bandaríska bakvörðinn Marquis Jackson um að leika með liðinu á komandi leiktíð.
Jackson er 32 ára gamall og kemur með mikla reynslu úr evrópskum körfubolta, en hann útskrifaðist frá Ohio Christian University árið 2017 og hefur síðan leikið í Svíþjóð, Sviss, Frakklandi og á Spáni. Á síðasta tímabili spilaði hann einmitt á Spáni þar sem hann skilaði 10,2 stigum, 1,8 fráköstum og 2,6 stoðsendingum að meðaltali í leik, ásamt 40,6% þriggja stiga nýtingu.
Hattarmenn lýsa honum sem öflugum leikstjórnanda sóknarlega, sterkum varnarmanni og bjóða hann velkominn í hreindýralandið, en hann kemur til landsins í lok ágúst eða byrjun september.




