Bæði A-landslið Íslands í körfuknattleik leika vináttuleiki á erlendri grundu í dag. Leikirnir eru ekki í beinni sjónvarpsútsendingu en hægt verður að fylgjast grannt með framvindunni í gegnum beina tölfræðiveitu.
Kvennalandsliðið ríður á vaðið gegn Portúgal klukkan 16:00 að íslenskum tíma (17:00 að staðartíma). Hægt er að fylgjast með lifandi tölfræði úr leik kvenna hér.
Karlalandsliðið mætir svo Finnlandi klukkan 17:00 að íslenskum tíma (20:00 að staðartíma). Hægt er að nálgast lifandi tölfræði úr leik karla hér.
Greint verður nánar frá úrslitum að leikjum loknum.




