HomeFréttirFór í eina sólarlandaferð með fjölskyldunni, svo er ég bara búin að...

Fór í eina sólarlandaferð með fjölskyldunni, svo er ég bara búin að vera í körfu

A-landslið kvenna í körfuknattleik heldur utan til Lissabon í vikunni þar sem liðið leikur tvo æfingaleiki gegn Portúgal. Í hópnum er hin bráðefnilega Berglind Katla Hlynsdóttir, sem er aðeins 16 ára gömul og stendur nú á barmi þess að leika sína allra fyrstu landsleiki fyrir A-landsliðið. Berglind hefur áður æft með liðinu en að vinna sér sæti í leikmannahópnum á þessum aldri er magnað afrek sem ber vitni um mikla hæfileika.

Valið kemur í kjölfar stórkostlegs sumars hjá Berglindi með yngri landsliðum Íslands, þar sem hún vakti mikla athygli fyrir vasklega framgöngu. Hún fær nú dýrmætt tækifæri til að máta sig við þær bestu á alþjóðavettvangi og taka sín fyrstu skref með A-landsliðinu, eins og sjá má í viðtalinu við hana í spilaranum hér að neðan.

Fréttir
- Auglýsing -