HomeFréttirEkki búin að ákveða neitt

Ekki búin að ákveða neitt

A-landslið kvenna í körfuknattleik æfir nú af krafti áður en haldið verður til Lissabon í tvo æfingaleiki gegn Portúgal. Elísabeth Ýr Ægisdóttir, sem hefur leikið fjóra landsleiki fyrir Íslands hönd, æfir af kappi með liðinu á Ásvöllum en mun ekki fylgja hópnum til Portúgals.

Elísabeth leikur með Liberty-háskólanum í bandaríska háskólaboltanum og á eitt ár eftir af náminu þar ytra. Hún segist ekki vera búin að ákveða hvað taki við að háskólagöngunni lokinni og kýs frekar að einbeita sér að fullu að því að klára skólann og síðasta tímabilið sitt áður en næstu skref verða tekin, eins og heyra má í viðtalinu við hana í spilaranum hér að neðan.

Fréttir
- Auglýsing -