A-landslið kvenna í körfuknattleik heldur utan til Lissabon í vikunni þar sem tveir æfingaleikir gegn Portúgal bíða liðsins fyrir komandi verkefni í nóvember. Anna Ingunn Svansdóttir segir mikil gæði og breidd búa í núverandi landsliðshópi og leggur áherslu á hversu mikilvægt sé að nýta æfingaleikina í Portúgal til að skerpa á leik liðsins og festa góðar venjur í sessi.
Anna Ingunn leggur ríka áherslu á að hópurinn ætli sér að byggja ofan á þann flotta árangur sem liðið náði í síðustu undankeppni og halda áfram að stíga skref fram á við. Hún sér mikil sóknarfæri fyrir liðið í komandi for-undankeppni EuroBasket 2029 og segir mikinn hug í hópnum, eins og sjá má í viðtalinu við hana í spilaranum hér að neðan.




